Viðhald
Húsaklæðning ehf. hefur í áratugi sérhæft sig í viðhaldi fasteigna og fyrirbyggjandi aðgerðum.
Aðalflokkarnir fimm
- Húsaklæðning
- Múrviðgerðir
- Steypuviðgerðir
- Sprunguviðgerðir
- Lekaviðgerðir
Einnig í boði
- Þakskipti
- Gluggaskipti og glerskipti
- Málun
- Flísalagnir
- Gólfefni
- Flotun
Mygluhreinsun
Eru sveppir að hrjá heimilið?
Húsaklæðning notar umhverfisvæna sveppahreinsisápu „BioClean“ til að hreinsa burt sveppi. Efnið hamlar vöxt sveppa á ný.

Ástandsskoðun
Metinn er viðgerðaþáttur eignarinnar og verkefnum forgangsraðað.
Ef að viðgerð verður, gengur skoðunarkostnaður sem greiðsla inn á verkið.

Gluggaviðgerðir
Eru gluggar þrútnir af raka?
Húsaklæðning notar innrauða tækni til að þurrka upp raka í gluggum án þess að brenna þá.

Hitamyndataka
Leka lagnir? Er einangrun léleg? Lekur inn í rigningu? Er alltaf kalt í húsinu?
Ef svarið er já við einhverjum af þessum spurningum getur hitamyndavél komið að góðum notum til aðstoðar við að greina vandann.

Vatnsþétting steypu og tæringarvarnir
Ryðguð járn sprengja steypuhuluna og valda leka í kringum glugga.
Húsaklæðning býður upp á margar tegundir yfirborðsefna til úðunar á steypu: efni sem stöðva tæringu á járnum eða efni sem eru vatnsfráhrindandi.
Húsaklæðning notar umhverfisvæn tæringarvarnarefni og veitir nú 10 ára ábyrgð á járnaviðgerðum í steypu.
Ábyrgðin tekur til járnaviðgerða í steypu, ekki til annarrar þjónustu.

Flísalagnir, gólfefni og breytingar á inngangi
Flísalagnir, flotun og gólfefni, ásamt breytingum á inngangi.

Verkfræðiráðgjöf
Verkfræðiráðgjöf fylgir verkunum þar sem það á við.